SWYX IP símkerfi
Tilkoma IP-símkerfa hefur gjörbylt allri grunnhugsun í fjarskiptamálum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og gert alla tengda umsýslu mun meðfærilegri. Að þessu leyti er Swyx viðmótið einstaklega þægilegt, hagkvæmt og auðlæranlegt í meðförum enda algerlega byggt upp í kringum Windows umhverfi. Af þessum sökum er kerfið sérlega hentugt hjá þeim sem reka starfsstöðvar á á fleiri en einum stað eða eru með starfsfólkið ýmist heimavinnandi eða á faraldsfæti. Sérstök athygli er vakin á því að enginn heyranlegur munur er hljóðgæðum hvort heldur hringt er úr hefðbundnum símalínum eða í gegnum sjálft IP kerfið af Internetinu. Swyx lausnirnar þykja alls ekki kostnaðarsamar í uppsetningu og komu t.d. sérlega vel út úr samanburðarkönnun breska tímaritsins What To Buy For Business og hlaut þar “Best Buy” stimpilinn eða fjórar stjörnur af fjórum mögulegum.
Swyx IP símkerfi henta sérstaklega vel fyrirtækjum sem eru með starfstöðvar á fleiri en einum stað eða eru með starfsmenn sem vinna heima við eða eru mikið á faraldsfæti þar sem öll samskipti fara fram á IP kerfinu og eru þar með kostnaðarlaus. Athygli vekur að með Swyx símkerfunum er enginn heyranlegur munur á hljóðgæðum hvort sem hringt er yfir hefðbundnar símalínur eða IP kerfi.
Swyx hefur á síðustu árum orðið leiðandi í þróun og innleiðingu IP-símkerfa fyrir lítil, meðalstór og stór fyrirtæki sem vilja nýta sér nýjustu símatækni sér til hagræðingar, bæði fjárhagslega og til að ná fram tímasparnaði.
Með tilkomu alvöru IP-símkerfis breytist grunnhugsun í símamálum fyrirtækja og öll umsýsla verður auðveldari. Swyx viðmótið er byggt upp á Windows sem allir þekkja og tekur það því meðal starfsmann litla stund að tileinka sér og nýta fjölmarga möguleika hins nýja símkerfis.
Netheimur er endursölu og þjónustuaðili Swyx símkerfa á Íslandi.

Forsíða


