Lén og vefhýsing

Netheimur er hýsingaraðili fyrir .is og erlend lén t.d. .com, .org, .net, .co.uk svo eitthvað sé nefnt. Stofnkostnaður við skráningu á .is léni er kr. 7.982 m. vsk og er þá árgjald innifalið hjá Isnic* þar. Stofnkostnaður á erlendum lénum er kr. 0 ef lén er hýst hjá Netheimi.

Netheimur býður upp á ýmsa þjónustu fyrir vefsetur svo sem aðgang að öllum helstu gagnagrunnum t.d. PostgreSQL og MySQL. Fyrirtæki sem vista vefsíður sínar hjá Netheimi geta treyst á góðan uppitíma, örugga afritun daglega og góðan hraða. Vefþjónar okkar styðja m.a. eftirfarandi forritunarmál: ASP, PHP, Python, Perl o.m.fl.

* Isnic hefur umsjón með úthlutun á íslenskum svæðisnetföngum (.is).
Netheimur aðstoðar viðskiptavini sína við að sækja um .is lén.

Verðskrá fyrir hýsinguna er væntanleg á netið fljótlega.