Sophos

Netheimur hefur unnið með Sophos í yfir 10 ár. Samstarfið hefur verið einstaklega farsælt enda bæði fyrirtækin rekin með miklar áherslur á öryggislausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir. Sophos var stofnað árið 1985 og byrjaði sín fyrstu skref sem veiruvörn árið 1989. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Sophos aukið við lausnir sínar jafn og þétt og vaxið í að vera einn af þremur stærstu framleiðendum á öryggismarkaði með umsvif um allan heim.

Yfir 100 milljón notendur Sophos ásamt viðurkenningu sérfræðinga iðnaðarins sem raunverulegur kostur og einn af þremur stærstu framleiðendunum til móts við Symantec og McAfee þá býður Sophos upp bestu alhliða öryggislausn á markaðnum í dag.

Útstöðvar

Verðu útstöðina og hafðu gögnin örugg á vélinni og lokaðu á óæskilegan hugbúnað.

Dulkóðun

Tryggðu öryggi viðkvæmra gagna með viðurkenndri og öruggri dulkóðun.

Vefgáttir

Stýrðu netnotkun til að gera internet aðganginn öruggari og náðu fram fullum afköstum.

Tölvupóstur

Dulkóðun á tölvupósti til að tryggja öryggi og lokaðu á ruslpóst og vírusa.

Öryggi miðstýrt - einstaklega einfalt

Sophos álítur að öryggi sé best varið með styrkri stjórnun. Sophos býður uppá heildarlausn í öryggismálum fyrir öll fyrirtæki, menntastofnanir og ríkisstofnanir. Heildarlausn sem ver upplýsingakerfi / netkerfi fyrir þekktum og óþekktum snýkjuforritum (malware), njósnahugbúnaði (spyware), innrásum (intrusions), óæskilegum forritum (unwanted application), misnotkun fjöldapósts (spam), misnotkun regla (policy abuse) ásamt að útvega yfirgripsmiklar netstýringar eða NAC (Network Access Control).

Öryggislausnir Sophos Security and Control solutions er einstaklega einföld leið til að minnka þann kostnað og þau flækjustig sem það er að halda fyrirtæki / stofnun þinni frá öllum hættum tengdum upplýsingariðnaðinum.

  • Marghliða varnir með frábærum lausnum
  • Einföld verðlagning og frágangur leyfismála
  • Vef-, vefpósts- og símaþjónusta innifalin í öllum leyfum
  • Alheims yfirsýn og stöðugt eftirlit sérfræðinga frá SophosLabs™

Marghliða varnir

  • anti-virus
  • anti-spyware
  • anti-adware and PUAs
  • application control
  • behavior analysis (HIPS)
  • client firewall
  • anti-spam
  • anti-phishing
  • email content control
  • malicious website blocking
  • Network access control (NAC) of unknown or guest users

Ekki hika við að hafa samband og ræða við okkur um kosti Sophos.